5. júní 2012 |
Sumartími kominn á bókasafninu á Reykhólum
Héraðsbókasafn Reykhólahrepps á Reykhólum verður opið í sumar á miðvikudagskvöldum kl. 19-21, í fyrsta sinn á þeim tíma annað kvöld. Undantekning er miðvikudagurinn 27. júní en þá verður lokað vegna sumarleyfis. Síðasti dagur sumartímans verður 15. ágúst en þá tekur vetrartími við á ný.