2. júní 2010 |
Sundmót UDN og Strandamanna á Reykhólum
Sundmót Ungmennasambands Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga (UDN) verður haldið í Grettislaug á Reykhólum þriðjudagskvöldið 8. júní og hefst kl. 18. Skráningar berist til Herdísar í síma 690 3825 eða Ingu Smára í síma 848 4964 fyrir mánudaginn 7. júní. Keppt er í öllum aldursflokkum.
Þetta árið er Strandamönnum boðið að taka þátt í keppninni og þau sem að henni standa vonast eftir fjölmennu liði norðan heiða.
Ungmennafélagið Afturelding í Reykhólahreppi verður með pylsur og Svala til sölu.