9. febrúar 2013 | vefstjori@reykholar.is
Sunnudagaskóli, léttmessa og helgistund
Léttmessa verður í Reykhólakirkju kl. 13.30 á morgun, sunnudag 10. febr. Kór Reykhólaprestakalls syngur, organisti og kórstjóri er Viðar Guðmundsson. Klukkutíma síðar eða kl. 14.30 verður helgistund í Barmahlíð á Reykhólum. Kl. 11 fyrir hádegið er sunnudagaskólinn í kirkjunni. Prestur er sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir á Reykhólum.