18. september 2009 |
Sunnudagaskóli og Grettislaug raskast um réttahelgi
Réttahelgin í Reykhólahreppi hefur sín áhrif. Grettislaug á Reykhólum er opin heldur lengur í dag og á morgun en venjulega eða frá kl. 17 til 22. Sundlaugarvörður áréttar sérstaklega, að meðferð áfengra drykkja er með öllu óheimil á sundlaugarsvæðinu. Laugin verður lokuð á sunnudaginn eins og venjulega samkvæmt vetrartíma. Vegna réttahelgarinnar fellur Sunnudagaskólinn á Reykhólum niður núna á sunnudaginn.