8. desember 2016 | Umsjón
Sunnudagur til sælu!
Sunnudagurinn 11. desember verður heldur betur skemmtilegur og notalegur hjá okkur hérna í Reykhólaprestakalli, segir sr. Hildur Björk Hörpudóttir sóknarprestur á vef prestakallsins. Fyrst hefst jólaball sunnudagaskólans kl. 11 í Reykhólakirkju. Jólasveinninn kemur og dansar með okkur í kringum jólatréð, við heyrum jólasögu og syngjum saman jólalög við harmonikkuleik.
Aðventuhelgistund hefst í Barmahlíð kl. 15 og ætlum við að heyra guðspjallið og syngja saman jólalög.
Aðventukvöld hefst svo kl. 17 í Reykhólakirkju og þar munum við heyra jólasögu, syngja saman jólalög og hlusta á hugvekju um góðverk.
Hlakka til að sjá ykkur sem flest!
Hvað merkir aðventa? (Vísindavefurinn)