4. júní 2012 |
Súpufundi um Össusetrið frestað
Súpufundinum sem átti að vera á Reykhólum annað kvöld hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Á þessum fundi var ætlunin að kynna það sem á döfinni er hjá Össusetri Íslands ehf. en vegna anna þar á bæ eru mál þar ekki komin eins langt á veg og vonast var til.
Einhvern tímann þegar líður á sumarið verður blásið til súpufundar þar sem staðan hjá Össusetrinu og framtíðaráform verða kynnt.
Næsti súpufundur verður þriðjudagskvöldið 3. júlí og nánar auglýstur þegar þar að kemur.