24. febrúar 2011 |
Súpufundur á Reykhólum með breyttu sniði
Gistiheimilið Álftaland er á dagskránni á næsta súpufundinum á Reykhólum, sem verður fimmtudaginn 3. mars. Súpufundirnir hafa verið haldnir mánaðarlega í allan vetur og þar hafa forsvarsmenn fyrirtækja í sveitarfélaginu kynnt starfsemina. Þessi fundur verður að vísu með dálítið öðru sniði en hinir fyrri. Annars vegar verða, auk kynningarinnar á Álftalandi, almennar umræður um ferðaþjónustu og afþreyingu á Reykhólum. Hins vegar býður Álftaland gestum upp á smáréttahlaðborð og þess vegna verður enginn aðgangseyrir að þessu sinni.
Súpufundirnir eru haldnir í húsnæði Hlunnindasýningarinnar á Reykhólum og hefjast kl. 18.30.
Steinar og Sirrý í Álftalandi vonast til að sem flestir sjái sér fært að koma á fundinn og taka þátt í umræðum um málefni sem snerta alla íbúa Reykhólahrepps.