10. janúar 2011 |
Súpufundur um bátasafnið á Reykhólum
Hinn mánaðarlegi súpufundur í húsnæði Hlunnindasýningarinnar á Reykhólum verður annað kvöld, þriðjudagskvöldið 11. janúar. Þá fjallar Hjalti Hafþórsson um Bátasafn Breiðafjarðar á Reykhólum. Húsið verður opnað kl. 18.30. Súpuna annast að venju Steinar í Álftalandi.
Myndin er úr safni og þess vegna ósennilegt að þar sé um réttu súpuna að ræða ...
Vefur Bátasafns Breiðafjarðar á Reykhólum