5. janúar 2011 |
Súpufundurinn færist fram í næstu viku
Súpufundurinn mánaðarlegi á Reykhólum átti að þessu sinni að vera í kvöld, miðvikudaginn 5. janúar, en hann flyst fram á þriðjudaginn í næstu viku, 11. janúar. Þá verður Hjalti Hafþórsson fyrir hönd Bátasafns Breiðafjarðar með fyrirlestur, sem verður að venju í húsnæði Hlunnindasýningarinnar og verður húsið opnað kl. 18.30.