22. janúar 2010 |
Svæðisútvarpið lagt af eftir tveggja áratuga starfsemi
Svæðisútsendingar Ríkisútvarpsins leggjast af í núverandi mynd vegna sparnaðaraðgerða sem kynntar voru í dag. Sex starfsmönnum á þremur svæðisstöðvum var sagt upp störfum, þar á meðal Guðrúnu Sigurðardóttur á Ísafirði, forstöðumanni Svæðisútvarps Vestfjarða. Í frétt á ruv.is segir að ljóst sé að fréttaþjónusta Ríkisútvarpsins á landsbyggðinni taki miklum breytingum á næstunni, en meðal annars sé stefnt að því hefja útsendingar á landsvísu á sérstökum þætti með efni frá fréttamönnum úti á landi.
Svæðisútvarp Vestfjarða hóf göngu sína árið 1989. Finnbogi Hermannsson var forstöðumaður frá upphafi og allt til vorsins 2007 þegar hann settist í helgan stein. Við stöðu hans tók þá Guðrún Sigurðardóttur, sem hafði um árabil starfað sem fréttamaður á Svæðisútvarpinu ásamt Finnboga.