12. júlí 2018 | Ingibjörg Birna Erlingsdóttir
Sveinn Ragnarsson sextugur
Sveinn Ragnarsson Svarfhóli varð sextugur í gær 11. júlí. Sveinn sem m.a. starfar sem vefstjóri Reykhólavefsins, stakk af að heiman á afmælisdaginn í skemmtiferð af tilefni þessa stóra áfanga. Hann gaf lítið uppi um ástæður, enda maður hlédrægur; yfirleitt er hann maðurinn á bak við myndavélina að leita fanga í frétt á vefinn. Hann sést oft við að ná á mynd, fallegu augnarbliki í sveitinni okkar. Sveini er óskað innilega til hamingju með afmælið.
Torfi Sigurjónsson, fimmtudagur 12 jl kl: 23:39
Innilegar hamingjuóskir með daginn og þú stendur þig vel með þennan vel, njóttu vel í ferdalaginu.
Kveðja
Torfi