Sveinn á Skálanesi fimmtugur
Sveinn Berg Hallgrímsson bóndi á Skálanesi er fimmtugur á morgun, föstudaginn 13. apríl. Raunar má segja að varla verði þverfótað fyrir fimmtugsafmælum í Reykhólahreppi þetta árið. Á fremri myndinni er Sveinn að sinna æðarvarpinu en á hinni er afmælisbarnið tilvonandi ásamt konu sinni, Andreu Björnsdóttur, og börnunum.
Börnin eru, talið frá vinstri: Björn Orri, 26 ára, Ágústa Ýr, 23 ára, Aldís Eir, 17 ára, og Björgvin Logi, 19 ára.
Eyvi og Ólafía, fstudagur 13 aprl kl: 07:58
Til hamingju gamli