Tenglar

26. október 2011 |

Sveitarstjórn vill format umhverfisáhrifa leiðar A

Sjá myndaskýringar í meginmáli.
Sjá myndaskýringar í meginmáli.
1 af 2

Ingibjörg Birna Erlingsdóttir sveitarstjóri f.h. sveitarstjórnar Reykhólahrepps hefur sent tveimur ráðherrum og ráðuneytum þeirra eftirfarandi bókun varðandi vegamál sem hreppsnefndin samþykkti á síðasta fundi sínum: „Hreppsnefnd Reykhólahrepps fer fram á að vinna verði hafin við gerð formats umhverfisáhrifa á svokallaðri leið A yfir Þorskafjörð.“ Ráðherrarnir sem um ræðir eru Ögmundur Jónasson ráðherra samgöngumála og Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra.

 

Leiðin sem kallast leið A liggur framhjá Reykhólum og út Reykjanesið, þ.e. núverandi þjóðvegur út að Stað og Árbæ, og síðan yfir mynni Þorskafjarðar og yfir á Skálanes. Tillaga í þessa veru hefur ekki áður komið fram í bókunum eða álitsgerðum sveitarstjórnar Reykhólahrepps. Fram til þessa hefur verið lögð áhersla á láglendisleið sem lægi með Þorskafirði norðanverðum, meðal annars um Teigsskóg, og yfir mynni Djúpafjarðar og Gufufjarðar (leið B) enda er hún á aðalskipulagi. Verði sú hugmynd endanlega slegin af vill sveitarstjórn að A-leiðin verði könnuð og heldur sig við kröfuna um láglendisleið.

 

Rauða línan á mynd nr. 1 sýnir hugmynd að þverun yfir mynni Þorskafjarðar en hinar línurnar sýna aðra kosti sem verið hafa í umræðunni.

 

Á mynd nr. 2 er sýnd hugmynd að þverun yfir mynni Þorskafjarðar ásamt sjávarfallavirkjun.

 

Sjá einnig m.a.:

08.09.2011  Vegamálin: Hugsa verður til framtíðarinnar

30.08.2011  Vegur með sjávarfallavirkjun og Reykhólar í þjóðbraut?

 

Athugasemdir

Jóna Valgerður, rijudagur 01 nvember kl: 09:58

Það var fyrst rætt um leið A í sveitarstjórn sem sat frá 1998-2002. Við vildum flest fara þá leið, en Vegagerðin taldi það of dýrt á þeim tíma. Við fundum í gamalli byggðaáætlun sem unnin hafði verið á árunum 1960-1970 að mig minnir, tillögu um brú á þessum stað. Mér líkar það vel að þessi leið verði skoðuð í fullri alvöru.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31