Sveitarstjórnarkosningar 2022
Nú eru tæpir 2 mánuðir þar til við göngum til sveitarstjórnarkosninga.
Tíminn er fljótur að líða og gott að fara að íhuga hvaða fólk maður vill sjá í sveitarstjórn. Það er þó aðeins önnur hlið þessa máls, hin er hver eru tilbúin að takast það á hendur að sitja í sveitarstjórn.
Hér á síðunni er fólki velkomið að tjá sig um þetta, t.d. ef það er reiðubúið til að starfa í hreppsnefnd, vill stinga upp á einhverjum sem það treystir, eða bregðast við uppástungum. Hér með er fólk hvatt til að taka þátt í uppbyggilegri umræðu og varpa fram hugmyndum.
Einfaldast er náttúrlega að nota facebook til að koma skilaboðum á framfæri, en ef fólk vill tjá sig í lengra máli er hægt að senda greinina á netfangið vefstjori@reykholar.is og ekki verra ef mynd af höfundi fylgir.
Það verður sett hér inn á vefinn undir tengilinn Sjónarmið, og hingað á síðuna verður safnað efni um þetta svo það verði aðgengilegt á einum stað.