21. október 2009 |
Sveitarstjórnarmenn á fundum syðra
Sveitarstjórnarmenn í Vesturbyggð, Tálknafjarðarhreppi og Reykhólahreppi sitja núna með morgninum fund með samgöngunefnd Alþingis og Kristjáni L. Möller samgönguráðherra. Umræðuefnið er fyrirhugaður niðurskurður á vetrarþjónustu Vegagerðarinnar og fækkun ferða Baldurs yfir Breiðafjörð.
Að þeim fundi loknum er síðan fundur sveitarstjórnarmannanna með þingmönnum kjördæmisins. Þar eru einnig samgöngumál til umræðu, svo og niðurskurður á Heilbrigðisstofnuninni á Patreksfirði og fyrirhuguð aflagning sýslumannsembættisins þar.