Taðtrefjar í Búnaðarblaðinu Freyju
Annað tölublað Búnaðarblaðsins Freyju kom út í dag. Líkt og í fyrsta tölublaði er efnisvalið fjölbreytt og nýyrðið „taðtrefjar“ kemur þar fyrst fram á prenti. Meðal annars efnis má nefna vangaveltur um innlendan landbúnað og grein um íslenska hænsnastofninn sem er fjarri því eins einangraður og talið hefur verið. Einnig eru í ritinu greinar um olíueyðslu og afl dráttarvéla, gæði bása, ull og meðferð hennar og sitthvað annað.
Líkt og áður eru lesendur hvattir til að koma áliti sínu á blaðinu á framfæri við ritstjórn, hvort heldur er gegnum gestabókina á heimasíðunni www.sjarminn.is eða með því að senda rafpóst á sjarminn@sjarminn.is.
Þeir sem höfðu pantað prentaða útgáfu eiga von á henni eftir helgi.
Blaðið í heild má lesa hér á pdf-formi.
Sjá einnig:
07.08.2011 Búnaðarblaðið Freyja hefur göngu sína
02.07.2011 Landbúnaður: Freyja ætlar að fylla skarð Freys