Tenglar

26. nóvember 2016 | Umsjón

Tækifærisvísur eftir Guðbjörgu í Gautsdal

1 af 2

Á jólamarkaðinum í Króksfjarðarnesi á morgun, sunnudag, mun Karl Kristjánsson á Kambi flytja ljóð eftir móður sína, Guðbjörgu Karlsdóttur (Guggu í Gautsdal). Vísurnar sem hann ætlar að lesa upp eru tækifærisvísur, aðallega stökur, þar sem hún yrkir meðal annars um barnabörnin, afmælisvísur, önn dagsins og lífið og tilveruna.

 

Myndin af Guðbjörgu sem hér fylgir (mynd nr. 2) var tekin í Hornstrandaferð 2009, nánar tiltekið í húsinu í Búðum í Hlöðuvík.

 

Jólamarkaðurinn í Króksfjarðarnesi 2016

 

Athugasemdir

Umsjón, laugardagur 26 nvember kl: 19:54

Spurt hefur verið hvenær upplesturinn verði. Hann verður væntanlega upp úr klukkan tvö.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31