16. mars 2014 | vefstjori@reykholar.is
Taka þátt í vestfirskri ljóðasamkeppni
Nemendur í 3. og 4. bekk Reykhólaskóla hafa að undanförnu verið að yrkja og ætla að taka þátt í ljóðasamkeppni meðal vestfirskra grunnskólanema í tengslum við Bókahátíðina á Flateyri í lok þessarar viku. Ekkert ákveðið þema er í keppninni og mega skáldin ungu yrkja um hvað sem andinn blæs þeim í brjóst.
► Ljóðasamkeppni meðal vestfirskra grunnskólanema