Tenglar

4. júní 2016 |

Talningum lokið: Rjúpnastofninn í hnignun

Rjúpur / Wikipedia.
Rjúpur / Wikipedia.

Rjúpnatalningum á vegum Náttúrufræðistofnunar Íslands vorið 2016 er lokið. Mikill munur var á stofnbreytingum milli ára eftir landshlutum. Eindregin fækkun var frá Skagafirði og austur um til Suðausturlands. Í öðrum landshlutum voru niðurstöður misvísandi eftir talningasvæðum og fuglum ýmist fækkaði eða fjölgaði á milli ára.

 

Reglubundnar sveiflur í stofnstærð sem taka 10 til 12 ár hafa einkennt íslenska rjúpnastofninn. Þessar sveiflur hafa breyst í kjölfar friðunar 2003 og 2004 og samdráttar í veiði frá 2005 og er nú mun styttra milli hámarka en áður. Í sögulegu samhengi er rjúpnafjöldinn 2016 alls staðar undir meðallagi.

 

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Náttúrufræðistofnun Íslands. Þar segir einnig meðal annars:

 

Tíðarfar var hagstætt, talningar gengu vel og rjúpur voru taldar á 36 svæðum í öllum landshlutum.

 

Mat á veiðiþoli rjúpnastofnsins mun liggja fyrir í ágúst í kjölfar mælinga á varpárangri rjúpna nú í sumar. Jafnframt munu þá liggja fyrir útreikningar á afföllum rjúpna 2015 til 2016 og mat á veiði haustið 2015. Þegar þessi gögn eru tilbúin verður hægt að fjalla um mögulegar ástæður þess að stofninn er nú í hnignun.

 

Fréttatilkynningin í heild

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31