Tenglar

18. apríl 2011 |

Táningur í tölvunni á Hólmavík

Frá æfingu hjá Leikfélagi Hólmavíkur.
Frá æfingu hjá Leikfélagi Hólmavíkur.
Leikfélag Hólmavíkur frumsýnir gamanleikinn Með táning í tölvunni kl. 20 á miðvikudagskvöld í Félagsheimilinu á Hólmavík. Höfundur verksins er Ray Cooney, einn virtasti farsahöfundur nútímans, en leikstjóri er Arnar Snæberg Jónsson. Þýðandi er Jón Stefán Kristjánsson leikari. Hér er um að ræða nútímalegt verk sem hefur allt til að bera sem prýðir góðan gamanleik, segir í tilkynningu frá félaginu. Sjö leikarar fara með hlutverk og nokkrir þeirra að stíga í fyrsta sinn á svið með Leikfélagi Hólmavíkur. Auk leikaranna sjálfra tekur fjöldi fólks þátt í verkinu að tjaldabaki.

 

Áformað er að þrjár sýningar verði á Hólmavík yfir hátíðarnar og jafnvel ein til viðbótar í maí ef aðsókn verður næg. Önnur sýning verður á skírdag kl. 20 og þriðja sýning á páskadag kl. 20. Síðan stendur til að fara sýningarferð um Vestfirði um sjómannadagshelgina. Leikfélag Hólmavíkur fagnar 30 ára afmæli sínu um þessar mundir og má því búast við fleiri uppákomum áður en árið er liðið.

 

Þess má geta að Café Riis á Hólmavík verður með pítsur kl. 17.30-20 á frumsýningardaginn þannig að tilvalið er að fá sér pítsu áður en haldið er á sýningu. Þá er upplagt fyrir þá sem leggja leið sína á hátíðina Aldrei fór ég suður á Ísafirði að byrja ferðina á Hólmavík og fara í leikhús.

 
Um Ray Cooney (Wikipedia á ensku).
 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31