„Tekið af öldruðum og fært ungum“
„Aldraðir og öryrkjar eru ekki hóparnir sem helst eru aflögufærir í þjóðfélaginu. Það er umhugsunarefni og þarfnast rökstuðnings hvers vegna hópunum er raðað þannig að fjölskyldufólk er framar öryrkjum og öldruðum. Það er hægur vandi að réttlæta hækkun vaxtabóta í mikilli verðbólgu og að beita ríkissjóði til þess, en það er öllu torveldara að færa rök fyrir því að það svigrúm eiga aldraðir og öryrkjar að skapa með sérstakri skerðingu á sínum kjörum.“
Þetta segir Kristinn H. Gunnarsson, fyrrv. þingmaður Vestfjarðakjördæmis og síðan NV-kjördæmis, í grein sem hann sendi vefnum til birtingar.
„Þegar fullfrískt fólk lætur það eftir sér að gera kröfur fyrst til sín og skeytir ekki um hvernig það bitnar á öldruðum, sjúkum og öryrkjum er þjóðfélagið komið í siðferðilega kreppu,“ segir hann einnig.
Grein Kristins í heild má lesa hér eða undir Sjónarmið í valmyndinni hér vinstra megin undir fyrirsögninni Tekið af öldruðum og fært ungum - jafnaðarstefna?