Tenglar

30. mars 2011 |

Þæfing, slökunarnudd, ömmuteppi ...

Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi minnir á fjölbreytt námskeið, sem haldin eru á ýmsum stöðum þótt aðsetur hennar sé í Borgarnesi. Mörg þeirra standa aðeins eitt kvöld. Af slíkum námskeiðum á næstunni má geta tveggja sem haldin verða í Auðarskóla í Búðardal. Annars vegar námskeið 18. apríl, þar sem nemendur læra grunnhandtök við þæfingu og útbúa sjal eða trefil úr merinóull og silki. Hins vegar námskeið 4. maí, sem byggist á slökunarnuddi á baki, hálsi og handleggjum. Markmið þess er að koma þátttakendum á sporið að nudda sína nánustu. Einnig má geta um tveggja kvölda námskeið í Auðarskóla í apríl, þar sem kennt verður að hekla og setja saman barnateppi, svokallað ömmuteppi.

 

Allar nánari upplýsingar er að finna á vef Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31