15. maí 2014 | vefstjori@reykholar.is
Þakkir fyrir stuðning vegna Færeyjaferðar
Keppnisferð nokkurra félaga úr Bridgefélagi Hólmavíkur til Færeyja, þar á meðal spilara frá Reykhólum, er að renna upp. Félagið hefur leitað eftir stuðningi vegna ferðarinnar og biður vefinn að birta þakkir til þeirra aðila sem hér eru taldir í stafrófsröð:
- Hólakaup, Reykhólum
- Hólmadrangur, Hólmavík
- Kaupfélag Steingrímsfjarðar
- Sparisjóður Strandamanna
- Strandabyggð
- Þörungaverksmiðjan, Reykhólum