Tenglar

22. mars 2009 |

Þekktir að gamansemi eða undarlegheitum ...

Þjóðsögur og gamanmál ...
Þjóðsögur og gamanmál ...
1 af 2

Þessa dagana er að koma út ný bók hjá Vestfirska forlaginu, Þjóðsögur og gamanmál að vestan. „Þar er slegið á létta strengi í kreppunni með úrvali úr vestfirskri fyndni. Þótti forlaginu rétt, miðað við það dapra ástand sem nú ríkir sums staðar á landi voru, að gefa út úrval úr þjóðsagnabálkinum vestfirska til að reyna að létta mönnum í sinni. Þar erum við auðvitað komin út á mjög hálan ís því húmor manna er misjafn eins og sögurnar. En við létum þó slag standa og fengum hinn landsþekkta Vestfirðing og gleðigjafa, Hermann Gunnarsson, fyrrum léttadreng í Haukadal í Dýrafirði, til að velja sögurnar", segir í tilkynningu frá forlaginu.

 

„Vestfirska forlagið vonar að fólk kunni að meta þetta framtak núna þegar margir eru daprir og niðurdregnir yfir ástandi sem þeir eiga enga sök á. Græskulaus gamansemi, sem allir hafa gott af, er aðalsmerki hinna vestfirsku sagna. Upp með húmorinn! Oft var þörf en nú er algjör nauðsyn", segir Hallgrímur Sveinsson útgefandi, sem löngum er kenndur við Hrafnseyri við Arnarfjörð en er nú bóndi á Brekku í Dýrafirði.

 

Framan á bókinni eru myndir af fjórum mönnum, öllum vestfirskum með einum eða öðrum hætti, sem ýmist eru þekktir að nokkurri gamansemi eða dálitlum undarlegheitum, nema hvort tveggja sé. Meðal þeirra sem myndir eru af aftan á bókinni er maður nokkur búsettur á Reykhólum, oft kenndur við Mýrartungu í Reykhólasveit, sem svipað mætti segja um og hina fjóra.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31