Tenglar

30. apríl 2010 |

Theodóra á Höllustöðum látin

Theodóra Guðnadóttir húsfreyja á Höllustöðum.
Theodóra Guðnadóttir húsfreyja á Höllustöðum.
Á miðvikudag andaðist á Dvalarheimilinu Barmahlíð á Reykhólum Theodóra Guðnadóttir, sem lengst af var húsfreyja á Höllustöðum í Reykhólasveit. Hún var dóttir Guðna Pálssonar úr Biskupstungum og Ingveldar Guðjónsdóttur úr Helgafellssveit á Snæfellsnesi. Theodóra var ekkja Samúels Björnssonar bónda á Höllustöðum, sem látinn er fyrir nærfellt 25 árum. Börn þeirra eru Kristrún, Jónas, Þorgeir, Ingvar og Björn, sem flest eru búsett á Reykhólum.

 

Útförin fer fram frá Háteigskirkju í Reykjavík fimmtudaginn 6. maí kl. 13. Theodóra heitin verður jarðsett syðra við hlið eiginmanns síns.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Desember 2024 »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31