28. mars 2011 |
Þjóðaratkvæðagreiðslan: Tilhögun í Reykhólahreppi
Kjörstaður í Reykhólahreppi í þjóðaratkvæðagreiðslunni um IceSave-samningana 9. apríl verður í Bjarkalundi og stendur kjörfundur frá kl. 10 til 18. Kjörskrá liggur frammi á skrifstofu Reykhólahrepps á Reykhólum. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar, sem verður á skrifstofu Reykhólahrepps, verður auglýst sérstaklega á ákveðnum degi hér á vef hreppsins.
Þetta kemur fram í auglýsingu frá kjörstjórn Reykhólahrepps, sem lesa má í heild (pdf) í dálkinum Tilkynningar hér neðst til hægri. Þar er m.a. nánar greint frá því sem spurt verður um. Ýmsar frekari upplýsingar er að finna hér á kosningavef innanríkisráðuneytisins.