Tenglar

10. apríl 2009 |

Þjóðfræðaþing og mjöður á Hólmavík

Þjóðfræðistofa blæs til vorþings á Hólmavík á morgun, laugardag, og kynnir ýmis verkefni sín og samstarfsmanna. Fjallað verður meðal annars um þjóðerni og íróníu. Sýnd verða sýnishorn úr heimildamyndum í framleiðslu Þjóðfræðistofu, svo sem Leitin að Gísla Suurinpojan, sem fjallar um ferð finnsks þjóðfræðings á slóðir Gísla sögu Súrssonar. Hannes Lárusson myndlistarmaður og forstöðumaður Íslenska bæjarins og Magnús Rafnsson sagnfræðingur og stjórnarformaður Strandagaldurs ræða íslenskan torfbæjararf. Þá mun dr. Sigurjón Baldur Hafsteinsson mannfræðingur og lektor í safnafræðum við Háskóla Íslands kynna þá nýju námsbraut.

 

Að lokum verður fjallað um hinn goðsagnakennda mjöð og gestum boðið að bragða á. Vorþingið fer fram á Café Riis á Hólmavík og hefst klukkan 13.30. Allir áhugamenn velkomnir og sérstaklega þeir sem hafa upplýsingar um torfbæi á Ströndum.

 

Frekari upplýsingar í netfanginu dir@icef.is.

 

Vefur Þjóðfræðistofu

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31