Tenglar

18. maí 2016 |

Þjóðfræðisprell og hlaðborð á Hólmavík

Café Riis við Hafnarbraut á Hólmavík.
Café Riis við Hafnarbraut á Hólmavík.

Dagskrá sem ber yfirskriftina Þjóðfræðisprell verður á veitingastaðnum Café Riis á Hólmavík snemma núna á föstudagskvöld, 20. maí. Húsið verður opnað kl. 17.30 en dagskráin byrjar hálftíma síðar. Allir sem áhuga hafa eru hjartanlega velkomnir í fjörið. Það eru Kristín Einarsdóttir stundakennari í þjóðfræði við Háskóla Íslands, sem er að flytja á Strandir, og nokkrir þjóðfræðinemar, sem standa fyrir sprellinu, þar sem fróðlegar og skemmtilegar kynningar tengdar þjóðfræði eru á dagskránni.

 

Einnig er hlaðborð á vegum Café Riis á boðstólum, söngur og sprell, eftirhermukeppni, nikkuleikur og fleira skemmtilegt.

 

Þetta kemur fram í tilkynningu.

 

Dagskráin er þannig:

  • Kristín Einarsdóttir þjóðfræðingur opnar kvöldið og ræðir um þjóðfræði fyrr og nú.
  • Jón Jónsson þjóðfræðingur talar um þjóðfræðiverkefni á Ströndum og segir sögu Þjóðbrókar (tröllskessu á Ströndum sem félag þjóðfræðinema heitir eftir).
  • Agnes Jónsdóttir fjallar um flæðarmál og fjörulalla.
  • Anna Katrín Hafsteinsdóttir segir frá draugnum Bersa.
  • Dagrún Ósk Jónsdóttir talar um hryllilegar mannætur í þjóðsögnum.

Þá verður hægt að kaupa hlaðborð á Café Riis og gæða sér á dýrindis veitingum undir ljúfum tónum Ásdísar Jónsdóttur sem ætlar að spila á harmonikku.

  • Eftir matinn ætlar þjóðfræðingurinn Eiríkur Valdimarsson að tala um veður og þjóðtrú tengda því.
  • „Þá var grátur mín síðasta vörn“ – Gunnar Jóhannsson syngur nokkur þekkt dægurlög og Kristín túlkar textana og tengir við íslenskt samfélag.

Eftir þetta er ætlunin að efna til rosalegrar eftirhermukeppni þar sem öllum er velkomið að herma eftir hverjum sem þeim dettur í hug og fær besta eftirherman vegleg verðlaun!

 

Gunnar Jóhannsson úr Þyrlaflokknum, Ásdís Jónsdóttir strandanorn og skáld og Agnes Jónsdóttir þjóðfræðidúlla ætla svo að slá botninn í kvöldið með nokkrum skemmtilegum lögum.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31