Tenglar

28. desember 2008 |

Þjóðsögurnar söluhæstar hjá Vestfirska forlaginu

99 vestfirskar þjóðsögur.
99 vestfirskar þjóðsögur.

Í jólabókaflóði þessa árs eru 99 vestfirskar þjóðsögur, 3. heftið, sem Finnbogi Hermannsson rithöfundur og fyrrverandi fréttamaður á Ísafirði tók saman að þessu sinni, söluhæsta bókin hjá Vestfirska forlaginu, að sögn Hallgríms Sveinssonar, bónda og bókaútgefanda á Brekku í Dýrafirði. Strandamenn í blíðu og stríðu, 100 gamansögur af Strandamönnum, sem Strandamaðurinn Kristjón Kormákur Guðjónsson tók saman, fylgir henni þó fast eftir. „Greinilegt er á þessu að Vestfirðingar og aðrir þeir sem kaupa Bækurnar að vestan vilja halda uppi gamanmálum", segir Hallgrímur, „og verður það að teljast skiljanlegt í skammdeginu og miðað við þá alvörutíma sem við lifum nú um stundir."

 

Mikil eftirspurn hefur einnig verið eftir öðrum bókum forlagsins, að sögn Hallgríms. „Má þar nefna bækur eins og Húsið - Ljósbrot frá Ísafirði eftir Hörpu Jónsdóttur, en hún er í bókaflokknum Litlu bækurnar, og bókina Bær við árnið kenndur eftir Jón Þór Benediktsson, að ógleymdri Melódíum minninganna eftir Hafliða Magnússon og ritröðinni Frá Bjargtöngum að Djúpi, sem orðin er klassískur bókaflokkur fyrir Vestfirðinga og aðra sem áhuga hafa á Vestfjörðum."

 

Tvær bækur Vestfirska forlagsins hafa verið endurprentaðar að þessu sinni. Frá því að stafræn prentun kom til sögunnar er hægt að endurprenta bók á allt að einum sólarhring. Það gerðist um daginn með bókina Vaskir menn eftir Guðmund Guðna Guðmundsson og var það Prentsmiðjan Leturprent í Reykjavík sem stóð svo vasklega að verki.

 

Það skal áréttað hér, að undanfarin ár hefur Reykhóladeild Lionsklúbbs Búðardals fengið útgáfubækur Vestfirska forlagsins til sölu í héraðinu fyrir jólin til fjáröflunar fyrir samfélagsverkefni sín. Svo var einnig fyrir þessi jól.

 

Vestfirskur eljumaður hlýtur viðurkenningu

Bækurnar að vestan

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31