Tenglar

10. febrúar 2016 |

Þjóðsöngurinn og brjóstsykur

Eins og víðast á landinu er maskadagurinn á Reykhólum í dag, öskudag; þann dag fara ungmenni gjarnan í heimsóknir hér og þar og syngja og fá iðulega eitthvað að launum. Á Ísafirði og kannski reyndar víðar á norðanverðum Vestfjörðum er maskadagurinn hins vegar tveimur dögum fyrr, eða á bolludag. Núna komu hópar af krökkum á ýmsum aldri á skrifstofur Reykhólahrepps og sungu fyrir starfsfólkið.

 

Ekki var ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur, því að einhverjir sungu sjálfan þjóðsönginn, sem mörgum reynist erfiður. Aðrir hópar voru með frumsamið efni og yngsti hópurinn flutti söngvasyrpu sem hann æfði í morgun.

 

Að launum fékk mannskapurinn brjóstsykur; upplagður til að mýkja hálsinn að loknum söngskemmtunum.

 

Myndirnar voru teknar við þetta tækifæri.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Nvember 2024 »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30