22. desember 2014 |
Þorláksmessa: Skötuveisla og samkvæmi á kaffihúsi
Minnt skal á tvo viðburði á Reykhólum á morgun, Þorláksmessu. Annars vegar skötumessu Lions um og eftir hádegið og hins vegar kaffihúsið á Báta- og hlunnindasýningunni um kvöldið. Skötuveislan árvissa verður í borðsal Reykhólaskóla milli kl. 12 og 14. Saltfiskur í boði fyrir þá sem treysta sér ekki í sjálft lostætið. Allir eru velkomnir, alveg sama þó að þeir tengist Lions ekki neitt. Á kaffihúsinu verður fagnaður frá kl. 18 til 21 og jafnframt hægt að kaupa jólalegt góðgæti og síðustu gjafirnar.