Þorpið í Flatey - verndarsvæði í byggð, tillaga
Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkti á á fundi sínum 9. maí sl. að auglýsa til kynningar og umsagnar vinnslutillögu um verndarsvæði í byggð í Flatey. Vinnslutillagan er hjálögð.
Um Breiðafjörð og eyjar hans gilda sérstök lög (nr. 54/1995) sem hafa þann tilgang að stuðla að verndun landslags, jarðmyndana, lífríkis og menningarminja. Nýleg lög um verndarsvæði í byggð (nr. 87/2015) gera kleift að festa vernd Þorpsins í Flatey enn betur í sessi og fékk Reykhólahreppur styrk úr Húsafriðunarsjóði til að vinna tillögu til mennta- og menningamálaráðherra um að þorpið í Flatey verði gert að verndarsvæði í byggð á grundvelli síðarnefndu laganna. Stýrihópur sem samanstendur af tveimur fulltrúum úr sveitarstjórn og tveimur fulltrúum frá Framfarafélagi Flateyjar hefur haft umsjón með tillögugerðinni. Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á vefnum www.flateyverndartillaga.com og þar má einnig nálgast tillöguna sjálfa.
Öllum sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna til 15. ágúst 2018. Athugasemdir eða ábendingar skulu berast með tölvupósti á netfangið sveitarstjori@reykholar.is í síðasta lagi 15. ágúst 2018.
Ný sveitarstjórn mun fjalla um tillöguna og framkomnar athugasemdir við hana í ágúst/september og taka ákvörðun um framhaldið. Ef ákveðið verður að auglýsa tillöguna formlega skv. 5. gr. laga um verndarsvæði í byggð, gefst aftur 6 vikna athugasemdafrestur áður en gengið er frá tillögu til ásamt greinargerð til ráðherra.