Þorrablót í aðsigi... !!
Þorri er fjórði mánuður vetrar og hefst á föstudegi í 13. viku vetrar. Þar með er veturinn hálfnaður. Hann hefst á bóndadegi sem árið 2018 ber upp á 19. janúar.
Fimmtudag, 18. janúar kl 18-20 fer fram forsala miða á þorrablót Reykhólahrepps. Blótið fer fram í íþróttahúsinu laugardagskvöld 20. jan kl 20-26 (Kl 02 daginn eftir) og húsið er opnað kl 19.30. Miðar skulu pantaðir fram til forsölunnar í síma Friðrúnar eftir kl 16.00 (númer: 865 3480) eða með tölvupósti til finnurfimm@gmail.com.
Miðaverð er óbreytt frá árinu 2016, 6500 kr á veitingar, skemmtun og ball. 6000kr í forsölu. 3000 kostar inn á ballið eingöngu. Það er hljómsveitin Sue (eða heitir hún kannski Bland og út í það?) leikur fyrir dansi.
Búast má við þjóðlegum réttum, kveðskap, illkvittni og gráglettni í garð náungans.
Eftirtaldir sjá um að þakið rifni af íþróttahúsinu:
Birgitta sauðfjárbóndi, Finnur framkvæmdastjóri, Katla kvikmyndagerðarmaður, Kristján reykhúsmaður,
Eiríkur skytta, Friðrún mannræktarkona, Gústaf veggbrjótur, María garðyrkjukona.
Á næstu dögum munu birtast hér nokkrar glennur inn á skemmtiefnið. Einnig verður tilkynnt FB síða blótsins. Nefndin ræddi reyndar að nútímavæða skemmtunina en nýlega var fallið frá því að hafa eingöngu VEGAN fæðu á blótinu.Munið að skemmtunin er eingöngu ætluð 18 ára og eldri.