Tenglar

21. janúar 2011 |

Þorrablótið á Reykhólum: Nýlunda og annáll Dalla

Ilmurinn er indæll og bragðið eftir því.
Ilmurinn er indæll og bragðið eftir því.
Annað kvöld brestur á þorrablótið árvissa og vinsæla á Reykhólum. Að þessu sinni er sú nýlunda þar, að foreldrar og aðrir aðstandendur nemenda í 8.-10. bekk í Reykhólaskóla ætla að vera með sjoppu eftir að borðhaldi lýkur. Einnig verða til sölu heitar og kaldar samlokur. Þetta er gert í fjáröflunarskyni vegna Danmerkurferðar nemenda sem áformuð er í vor. Aldrei er að vita nema einhverjir finni til löngunar í eitthvað annað og meira þegar líður frá aðalmáltíðinni á blótinu. Sumir koma líka ekki fyrr en að loknu borðhaldi.

 

Að þessu sinni semur Guðjón Dalkvist Gunnarsson (Dalli) á Reykhólum annál ársins og flytur hann á þorrablótinu. Síðustu árin hafa Sveinn Ragnarsson á Svarfhóli eða Dalli samið annálinn og má ekki á milli sjá hvor þeirra er ríkari að skopskyni og stílfærni.

 

Þorrablótið er eins og áður í íþróttahúsinu á Reykhólum. Húsið verður opnað kl. 19.30 en borðhald hefst kl. 20.30. Aldurstakmark er 16 ár.

 

Nánari upplýsingar um blótið má nálgast hér.

 

Athugasemdir

Hlynur Þór Magnússon, umsjónarmaður vefjarins, laugardagur 22 janar kl: 15:42

Óskað er eftir því að fá sendar í tölvupósti góðar myndir teknar á þorrablótinu til birtingar hér á vefnum. Þær mega samt ekki vera á nokkurn minnsta hátt „óheppilegar“ fyrir fólk sem þar kann að vera myndefni - vona að þetta orðalag sé vel skiljanlegt ...

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31