25. janúar 2014 | vefstjori@reykholar.is
Þorraþema á opnu húsi hjá Barðstrendingafélaginu
Fyrsti viðburðurinn hjá Barðstrendingafélaginu á þessu ári er þorraþema á opnu húsi núna á mánudagskvöld (27. janúar) kl. 20-22. Til reiðu verður smakk á þorramat og eitthvað verður til skemmtunar. Staðurinn er Konnakot, bækistöð félagsins á annarri hæð að Hverfisgötu 105 í Reykjavík.
Fjölmennum og njótum samveru sýslunganna, segir á Facebooksíðu félagsins. Aðgangseyrir er einn þúsundkall.
Ásgeir Överby, laugardagur 25 janar kl: 21:38
Þorskafjörður.
Friði Drottinn fjörðinn minn
fósturbyggð og þingstaðinn.
Blessi lýð og landsins plóg
lífgi við minn gamla skóg.
MJ