Tenglar

18. nóvember 2009 |

Þörungaverksmiðjan á súpufundi á Hólmavík

Þörungaverksmiðjan í Karlsey um tvo km neðan við þorpið á Reykhólum. Svifdrekamynd: Árni Geirsson.
Þörungaverksmiðjan í Karlsey um tvo km neðan við þorpið á Reykhólum. Svifdrekamynd: Árni Geirsson.
Á vikulegum súpufundi á Café Riis á Hólmavík í hádeginu á morgun, fimmtudag, mun Atli Georg Árnason, frkvstj. Þörungaverksmiðjunnar hf. á Reykhólum, kynna starfsemi hennar. Það verður eflaust fróðlegt fyrir íbúa á Ströndum að fá tækifæri til að kynnast þeirri starfsemi, segir á Strandavefnum. Þörungaverksmiðjan framleiðir mjöl úr klóþangi (ascophyllum nodosum) og hrossaþara (laminaria digitata) sem sótt er til vinnslu víðs vegar úr Breiðafirði.

 

Verksmiðjan tók til starfa árið 1975 og verður því 35 ára á næsta ári. Meira en 95% af framleiðslu hennar fara til útflutnings og helstu markaðir eru Skotland, Bandaríkin, Bretland, Noregur, Holland, Þýskaland, Frakkland, Japan og Taiwan. Mjölið er framleitt að miklu leyti fyrir fyrirtæki sem áframvinna efnið enn frekar til notkunar í matvæla-, snyrtivöru-, lyfja- og textíliðnaði ásamt margs konar öðrum iðnaði.

 

Þörungaverksmiðjan hf. tók formlega á móti vottun þann 14. júní 1999 þess efnis að framleiðsla hennar sé lífrænt vottuð. Stöðugildi hjá Þörungaverksmiðjunni eru 32 og auk þess starfa verktakar við þangslátt á sumrin.

 

Þessi þriðji súpufundur vetrarins verður að venju í hádeginu á fimmtudegi á Café Riis kl. 12-13. Á Strandavefnum eru allir hvattir til að mæta og fræðast um Þörungaverksmiðjuna og gæða sér á gómsætri súpu á Café Riis.

 

Vefur Þörungaverksmiðjunnar

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31