Tenglar

16. október 2020 | Sveinn Ragnarsson

Þörungaverksmiðjan fyrirmyndarfyrirtæki

Viðskiptablaðið í samstarfi við Kelduna birti í gær lista yfir fyrirtæki á landinu sem fá einkunnina fyrirmyndarfyrirtæki á þessu ári. En 2,8% íslenskra fyrirtækja komast á listann.

 

Tuttugu  vestfirsk fyrirtæki komast á listann. Níu þeirra eru á Ísafirði, fjögur í Bolungavík, tvö fyrirtæki á Drangsnesi og fimm fyrirtæki sem eru á eftirtöldum fimm stöðum, í  Súðavík, á Suðureyri, Hólmavík, Patreksfirði og á Reykhólum.

 

Af þessu fyrirtækjum er eitt í opinberri eigu, Orkubú Vestfjarða.

Hin eru:

Oddi hf Patreksfirði, Þörungaverksmiðjan ehf á Reykhólum, Klofningur ehf Suðureyri, Aurora Seafood ehf Súðavík, Hlökk ehf  Hólmavík, Fiskvinnslan Drangur ehf og ST 2 ehf á Drangsnesi, Jakob Valgeir ehf, Fiskmarkaður Vestfjarða ehf, Þotan ehf og Endurskoðun Vestfjarða ehf í Bolungavík og á Ísafirði:  Laugi ehf, Snerpa ehf, Vélsmiðjan Þristur ehf, Bakarinn ehf, Kubbur ehf, Vestri ehf, Sjóferðir Hafsteins og Kiddýar, Rafskaut, 3X Technology hf.

 

Til þess að komast á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar yfir Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri þurfa fyrirtækin að uppfylla ströng skilyrði:

  • Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri þurfa að hafa skilað ársreikningi fyrir rekstrarárin 2019 og 2018 en rekstrarárið 2017 er einnig notað til viðmiðunar.
  • Fyrirtækin þurfa að hafa skilað jákvæðri afkomu á rekstrarárunum 2019 og 2018.
  • Tekjur fyrirtækja þurfa að hafa verið umfram 30 milljónir króna á rekstrarárunum 2019 og 2018.
  • Eignir fyrirtækja þurfa að hafa verið yfir 80 milljónir króna í lok áranna 2019 og 2018.
  • Eiginfjárhlutfall fyrirtækja þarf að hafa verið yfir 20% í lok áranna, nema í tilviki bankanna.

Auk þessa er tekið tillit til annarra þátta, sem metnir eru af Viðskiptablaðinu og Keldunni.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Desember 2024 »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31