Tenglar

6. janúar 2020 | Sveinn Ragnarsson

Þrettándabrenna - flugeldasala

mynd af mbl.is.
mynd af mbl.is.

Áramótabrennan sem var frestað á gamlárskvöld, breyttist í þrettándabrennu og verður í kvöld. Það verður  kveikt í henni kl. 18.

 

Þrettánda- flugeldasala björgunarsveitarinnar Heimamanna verður opin í dag, 6. 1. 2020 að Suðurbraut 5, Reykhólum, milli kl. 17 og 20.

 

Ásamt flugeldum er hægt að kaupa græðlinga sem verður gróðursettir í vor í samstarfi við skógræktarfélagið Björk í Reykhólahreppi. Allur ágóði af sölunni rennur til Björgunarsveitarinnar Heimamanna.

 

Flugeldasala Björgunarsveitanna er mikilvægur liður í fjáröflun sveitarinnar og er ágóði hennar nýttur til þess að styrkja starf sveitarinnar, t.d. kaup á nýjum búnaði, endurnýjun á gömlum búnaði, þjálfun og fræðsla.

Einnig tekur björgunarsveitin alltaf á móti styrkjum, hægt er að leggja inn á reikning Heimamanna.

kt. 430781-0149
rk.nr. 0153-36-000781

 

Hægt er að hafa samband við okkur einnig á veffanginu heimamenn@gmail.com

Einnig er hægt að fylgjast með starfi Heimamanna á facebook.com/heimamenn

 

Heimamenn þakka öllum fyrir stuðninginn í gegnum árin.

 

  

  

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31