Tenglar

7. janúar 2021 | Sveinn Ragnarsson

Þverun Þorskafjarðar boðin út í næstu viku

mynd, af vef Vegagerðarinnar
mynd, af vef Vegagerðarinnar
1 af 2

Stefnt er að því að bjóða út þverun Þorskafjarðar í næstu viku, en nýverið náðist samkomulag við landeigendur í Þorskafirði.

 

Verkið ber heitið Vestfjarðavegur (60) um Gufudalssveit, Kinnarstaðir-Þórisstaðir. Í því felst nýbygging Vestfjarðavegar á um 2,7 km kafla við austanverðan Þorskafjörð.

Meðal verkefna er bygging 260 metra langrar steyptrar brúar yfir Þorskafjörð.

 

Vegurinn er alfarið byggður í nýju vegstæði en tengist núverandi Vestfjarðavegi í báða enda.

 

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu (EES).

 

Tilkynning af vef Vegagerðarinnar.

 

Frétt um þetta á visir.is er hér.

 

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31