Tenglar

19. desember 2013 | vefstjori@reykholar.is

Til viðskiptavina Landsbankans

Vegna þess að næstu tvo miðvikudaga ber upp á jóladag og nýársdag færist þjónusta Landsbankans á Reykhólum til. Í staðinn verður hún föstudaginn 27. desember og fimmtudaginn 2. janúar með að öðru leyti venjubundnum hætti í húsakynnum Reykhólahrepps við Maríutröð og á Dvalarheimilinu Barmahlíð.

 

Frá því að útibúi bankans í Króksfjarðarnesi var lokað í fyrrasumar hefur Sóley Vilhjálmsdóttir í Nesi komið á Reykhóla á miðvikudögum og annast almenna bankaþjónustu á ofangreindum stöðum. Eins og nú kemur hún einhvern annan dag ef miðvikudag ber upp á helgidag.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31