20. júlí 2014 | vefstjori@reykholar.is
Tilboð á markaðinum í Króksfjarðarnesi
„Húsið er fullt af bókum! Í tilefni af því verða þær á tilboði í dag (og mögulega lengur): 2 fyrir 1, og þeir sem kaupa tvær eða fleiri fá kilju í kaupbæti,“ segja þau hjá Handverksfélaginu Össu. Handverks-, nytja- og bókamarkaður Össu í kaupfélagshúsinu gamla í Króksfjarðarnesi er opinn alla daga í sumar kl. 12-18. Þar er líka heitt á könnunni. Í einni vistarverunni er Arnarsetur Íslands til húsa.
Sjá einnig:
► 21.06.2013 Fólk segir bara hvað það vill borga
Gulla á Gróustöðum, sunnudagur 20 jl kl: 21:22
Við erum einnig farin að selja ferska bláskel (krækling) á staðnum!