13. apríl 2021 | Sveinn Ragnarsson
Tilboða óskað í slátt og hirðingu
Tilboð í garðslátt
Sóknarnefnd Reykhólakirkju óskar eftir tilboði í slátt og hirðingu túna á lóð Reykhólakirkju, Reykhólakirkjugarði og framan við kirkjugarðinn sumarið 2021.
Miðað er við að slátt og hirðingu svæðisins 4-5 sinnum yfir sumarið. Kirkjan leggur til sláttutraktor og sláttuorf.
Í tilboðinu þarf að felast;
Sláttur og hirðing
Förgun á viðeigandi förgunarstað
Útvegun á bensíni og rekstrarvörur vegna sláttar og hirðu
Tilboðið skal miðast við slátt og hirðingu með tilheyrandi kostnaði í eitt skipti án vsk.
Tilboð þurfa að hafa borist í lokuðum umslögum til Reykhólakirkju fyrir kl. 16:00 þann 21. apríl 2021.
Tilboðin verða opnuð 21. apríl kl. 16:15, í Reykhólakirkju.