Tenglar

26. júní 2018 | Sveinn Ragnarsson

Tilkynning frá Reykhólahreppi

Við Ódrjúgsháls
Við Ódrjúgsháls

Endurbætur á Vestfjarðarvegi þola enga bið. Til þess að ná megi sátt og koma þannig í veg fyrir tafir fékk sveitarstjórn Reykhólahrepps norsku verkfræðistofuna Multiconsult til að rýna tillögur Vegagerðarinnar að leiðavali.  Niðurstöður rýninnar verða kynntar á opnum fundi í grunnskólanum á Reykhólum, miðvikudaginn 27. júní, frá kl. 20 – 22.


 Endurbætur á veginum eru mikilvægt hagsmunamál fyrir alla íbúa Vestfjarða.  Málið hefur tafist af ýmsum ástæðum, sem flestar eiga rætur að rekja til umhverfisáhrifa eða kostnaðar.  Sveitarstjórn þykir því mikilvægt að sem best yfirsýn og fullvissa ríki um að sá kostur sem verður fyrir valinu sé skynsamleg málamiðlun.


Allir sem hafa áhuga eru hvattir til að koma á fundinn og kynna sér niðurstöður norsku sérfræðinganna.  Í framhaldi af kynningunni mun sveitarstjórn taka endanlega afstöðu.


(Sjá dreifibréf og auglýsingu hér á síðunni)


 Sveitarstjórn Reykhólahrepps.

  

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31