Tenglar

10. janúar 2013 | vefstjori@reykholar.is

Tilkynning frá félagsþjónustusvæðum Vestfjarða

Skjáskot úr Kastljósi.
Skjáskot úr Kastljósi.

Í ljósi umfjöllunar um kynferðisbrotamál í Kastljósi undanfarna daga vilja félagsþjónustur á Vestfjörðum (Félagsþjónustan við Djúp, Félagsþjónusta Ísafjarðarbæjar, Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps og Félagsþjónustan í Vestur-Barðastrandarsýslu) leggja áherslu á mikilvægi þess að þeir sem hafa orðið fyrir slíkri reynslu fái viðeigandi aðstoð og stuðning. Félagsmálastjórar á Vestfjörðum veita aðstoð í slíkum málum og þeir sem vilja eru hjartanlega velkomnir til viðtals. Jafnframt er bent á samtökin Stígamót eða Sólstafi Vestfjarða.

 

Undir þessa tilkynningu rita:

  • Elsa Reimarsdóttir, félagsmálastjóri í Vesturbyggð.
  • Guðný Hildur Magnúsdóttir, félagsmálastjóri í Bolungarvík og Súðavík.
  • Hildur Jakobína Gísladóttir, félagsmálastjóri Stranda og Reykhólahrepps.
  • Margrét Geirsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs Ísafjarðarbæjar.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31