Tenglar

5. ágúst 2016 |

Tilkynning um þátttöku í forvali VG

Lilja Rafney Magnúsdóttir.
Lilja Rafney Magnúsdóttir.

„Ég býð mig fram í forvali VG og gef kost á mér til að leiða áfram lista VG í Norðvesturkjördæmi,“ segir Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismaður á Suðureyri í tilkynningu. „Þau sjö ár sem ég hef setið á Alþingi hafa verið miklir og lærdómsríkir umbrotatímar í lífi þjóðarinnar. Sú reynsla sem ég hef hlotið á þessum tíma hefur nýst mér vel og mun ég nota hana áfram eins og hingað til á uppbyggilegan hátt í baráttunni fyrir réttlátara samfélagi fyrir alla.

 

Ég er landsbyggðar- og alþýðukona, sprottin úr jarðvegi verkalýðsbaráttu og baráttu fyrir hagsmunamálum landsbyggðarinnar. Ég gjörþekki lífsbaráttu fólksins til sjávar og sveita. Landsbyggðin er minn staður og ég hef búið áfram í mínu byggðarlagi – Suðureyri við Súgandafjörð – eftir að ég varð þingmaður, þótt vinnan fari að mestu fram í Reykjavík. Bakgrunnur minn úr verkalýðsmálum og sveitarstjórnarmálum hefur nýst mér vel í störfum mínum sem þingmaður.

 

Ég hef alltaf tekið og mun alltaf taka slaginn fyrir þá sem minna mega sín í samfélaginu. Barátta mín á Alþingi hefur einkum snúist um að koma fram breytingum á fiskveiðistjórnarkerfinu, stuðla að innviðauppbyggingu á landsbyggðinni, öflugum landbúnaði, jafnrétti til náms, náttúruvernd og endurreisn heilbrigðis- og velferðarkerfisins þar sem hagsmunir aldraðra, öryrkja og unga fólksins eru tryggðir. Það er vissulega mikilvægt að hafa góðar hugsjónir en það er ekki síður mikilvægt að fylgja þeim eftir og tala fyrir þeim við hvert tækifæri. Aukinn jöfnuður er lykilatriði í þeim breytingum sem ég vil gera á samfélagi okkar. Við eigum öll að hafa sömu tækifæri til lífs og þroska, við berum öll ábyrgð og skyldur gagnvart samfélagi okkar og okkur ber að hafna sérhagsmunagæslu og spillingu afdráttarlaust.

 

Ég þekki hinn pólitíska slag og er reiðubúin til að berjast áfram með Vinstri grænum hinni góðu baráttu fyrir jöfnuði og velmegun um land allt. Ég leita því stuðnings kjósenda til að leiða áfram framboðslista VG í Norðvesturkjördæmi í komandi Alþingiskosningum.

 

Með góðri kveðju.

Lilja Rafney Magnúsdóttir, alþingismaður.“

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31