Tenglar

2. júní 2016 |

Tilkynning varðandi kjörskrá

Núna á laugardag, 4. júní, gerir Þjóðskrá Íslands kjörskrárstofn vegna komandi forsetakosninga. Af því tilefni er minnt á, að tilkynningar um lögheimilisbreytingar þurfa að berast Þjóðskrá Íslands í síðasta lagi á morgun, föstudaginn 3. júní, eigi þær breytingar að verða skráðar í þjóðskrá fyrir viðmiðunardag.

 

Stefnt er að því að prentútgáfa kjörskrárskrárstofnsins verði tilbúin til afhendingar 8. júní. Á sama tíma verður opnað fyrir uppflettingu á vefnum Hvar á ég að kjósa? þar sem hægt er að kanna hvort og hvar fólk er á kjörskrá.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31