Tenglar

20. júlí 2011 |

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi auglýst

Hreppsnefnd Reykhólahrepps samþykkti á fundi sínum 9. júní 2011 að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykhólahrepps 2006-2018, um er að ræða breytingar á Vestfjarðavegi nr. 60 frá Vattarfirði í Kjálkafjörð. Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst eftir athugasemdum við tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykhólahrepps. Skipulagsuppdrættir, greinargerð og umhverfisskýrsla liggja frammi á skrifstofu Reykhólahrepps og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík, frá 11. júlí til 29. ágúst 2011. Ennfremur eru gögnin aðgengileg hér á heimasíðu sveitarfélagsins.

 

Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu Reykhólahrepps að Maríutröð 5a eða á netfangið skrifstofa@reykholar.is merkt „aðalskipulag“ í síðasta lagi til og með 29. ágúst 2011. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests teljast samþykkir tillögunni.

 

- Sveitarstjóri Reykhólahrepps.

 

Auglýsing um þetta sama efni birtist hér á vef Reykhólahrepps 11. júlí. Hún er nú endurbirt dálítið breytt.

 

Gögnin sem vísað er til er að finna undir Stjórnsýsla > Skipulag Reykhólahrepps í valmyndinni hér vinstra megin á síðunni. Um er að ræða fjögur pdf-skjöl sem öll eru merkt innan sviga júlí 2011.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Oktber 2024 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31