Tillögur að breytingum á aðalskipulagi auglýstar
Hreppsnefnd Reykhólahrepps samþykkti á fundi sínum 10. apríl 2014 að auglýsa tillögu að breytingum á aðalskipulagi Reykhólahrepps 2006-2018. Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst eftir athugasemdum við tillögu að breytingum á aðalskipulagi Reykhólahrepps.
Breytingar á aðalskipulagi Reykhólahrepps felast í að breyta skilgreindri afmörkun þéttbýlisins, reitur V‐3 er færður að Stekkjarvogi, gönguleiðir endurskoðaðar, ný náma, afmörkun nýrra hafnarmannvirkja og iðnaðarsvæðis. Í dreifbýlinu er gerð leiðrétting á númerum frístundabyggðar og frístundabyggðasvæði í landi Kirkjubóls F‐12 stækkað.
Skipulagsuppdrættir og greinargerð liggja frammi á skrifstofu Reykhólahrepps frá 24. júlí til 5. september 2014. Ennfremur eru gögnin aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins, www.reykholar.is.
Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu Reykhólahrepps að Maríutröð 5a, 380 Reykhólar, eða í netfangið skrifstofa@reykholar.is merktum „Aðalskipulag“.
Reykhólum, 14. júlí 2014,
Bogi Kristinsson Magnusen,
skipulags- og byggingafulltrúi.
_______________________
Umrædd gögn er að finna hér á vef Reykhólahrepps undir Stjórnsýsla / Skipulag Reykhólahrepps í valmyndinni vinstra megin. Tillöguna má einnig sækja hér og greinargerðina hér.