Tilmæli vegna Reykhóladaga 2015
Jóhanna Ösp Einarsdóttir tómstundafulltrúi Reykhólahrepps leitar til fólksins í héraðinu og jafnframt til félagasamtaka, fyrirtækja og annarra sem kynnu að hafa áhuga á því að standa fyrir einhverjum viðburðum á byggðarhátíðinni árvissu Reykhóladögum á komandi sumri.
„Þessir viðburðir gætu bæði verið til gamans fyrir samfélagið en líka sem einhvers konar fjáröflunarviðburðir fyrir félagasamtök og fyrirtæki. Ef einhver hefur áhuga á að standa fyrir einhverju slíku, þá ætla ég að reyna að finna pláss fyrir það í dagskránni og miða hana út frá því,“ segir hún. Sama gildir ef fólk vill vera með súpu eins og verið hefur á Reykhóladögum á undanförnum árum.
Áhugasamir hafi samband í netfanginu johanna@reykholar.is sem fyrst.
Jóhönnu Ösp tómstundafulltrúa til fulltingis við undirbúning Reykhóladaga 2015 eru þær Harpa Eiríksdóttir og María Maack.