13. júlí 2016 |
Tilmæli vegna Reykhóladaga 2016
Héraðshátíðin Reykhóladagar byrjar eftir rúma viku. Jóhanna Ösp Einarsdóttir umsjónarmaður hátíðarinnar biður fólk sem vill vinna við gæslu á ballinu á laugardagskvöldinu að hafa samband í netfanginu johanna@reykholaskoli.is og líka þá sem vilja bjóða heim í súpu að hefðbundnum hætti. Þeir sem vilja mæta í Hvanngarðabrekku á laugardeginum og selja einhvern varning úr skottinu á bílnum hafi líka samband.
Dagskrá Reykhóladaganna er nánast frágengin og kemur hér inn á vefinn síðar í dag, með fyrirvara um hugsanlegar viðbætur eða breytingar. Þær verða þá settar þar inn jafnóðum.